Úff pæliði hvað ég er mögnuð, skellti mér í xfactor um helgina!
Rosa stolt af mér fyrir að hafa þorað þessu þó svo að ég hafi ekki
komist áfram nema bara úr forvalinu
Þetta var bara alveg ótrúlega gaman, svaka stemning þarna þrátt
fyrir að hafa þurft að bíða SOLDIÐ lengi! En maður kynntist fullt
af skemmtilegu fólki þarna og skemmti sér vel.
Er alls ekki ósátt við að hafa ekki komist áfram en er samt
frekar ósátt við það hversu illa skipulagt þetta var og hvernig að
þessu var staðið, fékk t.d. ekki að vita fyrr en daginn fyrir að ég
þyrfti að hafa tilbúin tvö lög, þurfti svo að bíða þarna í 13 tíma
þar sem ég færðist aftar í röðina því það "gleymdust" víst tvö þrjú
blöð sem voru svo sett í miðjuna!! Pælið í því!! En já ég mætti
þarna klukkan átta um morguninn og söng um níuleytið um kvöld.. ég
fann þá bara á mér þegar ég labbaði inn að ég myndi vera með þeim
seinustu þarna.. það lendir einhvern veginn alltaf svoleiðis með
mig! Röðin á manni var alveg random það var bara dregið um hvernig
röðin ætti að vera svo við gátum engu breytt um það..
Loksins þegar ég fór inn til dómnefndarinnar spurðu
þau hvaða lag ég ætlaði að taka og ég sagði þeim það en þá sögðu
þau bara nei það gengur ekki því það eru svo margir búnir að syngja
það í dag! Svona lagað finnst mér fáránlegt, þetta lag var ekki á
bannlista, ég var búin að æfa það og æfa og æfa fyrir keppnina og
það var ekki mér að kenna að ég var svona aftarlega og svo fæ ég
ekki að vita fyrr en ég kem inn að ég fái ekki að taka lagið sem ég
ætlaði mér að taka.. ég tók þess vegna aukalagið mitt sem ég valdi
mér kvöldið áður by the way og fékk ekki að komast áfram vegna þess
að þau sögðu að það hefði ekki verið sungið eins og höfundurinn
hefði viljað láta syngja það!
Ég var samt ótrúlegt en satt bara þvílíkt örugg með mig og ekki
stressuð sem ég er bara geðveikt hissa á, var búin að sjá mig
fyrir mig skjálfandi eins og hríslu þarna og gubba eða eitthvað því
ég er svona þessi stressaða týpa en nei mín bara ekki stressuð!
Ég labbaði svo út bara geðveikt eðlileg og sagðist ekki hafa
komist áfram.. geðveikt ánægð með að hafa náð að halda mér á
jörðinni... en því miður þurfti ég að fara í eitthvað fáránlegt
viðtal á eftir, gvuð ég vona að það verði ekki birt ég skammast mín
SVO!!! Ég nebbla settist niður og beið eftir viðtalinu og
þegar ég var búin að bíða í smástund byrjaði ég tárast og mér til
mikillar gremju fór ég að gráta gvuð ég var svo reið við sjálfa mig
og reyndi eins og gat að hætta þessu! sem tókst en því miður þurfti
ég rétt á eftir að fara í þetta viðtal mætti þarna með tárin í
augunum sem mér tókst ekki að fela og kökkinn í hálsinum og átti að
tala að mér fannst bara endalaust! Þurfti að standa oná einhverjum
kassa með myndavélina beint í andlitinu og tala.. hann romsaði öllu
útúr sér sem ég átti að segja og byrjaði svo bara að mynda! Ég
mundi þá ekkert hvað ég átti að segja og bara ööö.. vissi ekkert
hvað ég átti að segja! Var svo ekki í stuði til að tala fyrir
framan myndavél þessa stundina!
Já svona var þetta.. var nett þreytt þegar ég kom heim eftir
þetta, bara alveg búin eftir helgina.. enda búin að vera bæði
laugardag og sunnudag í xfactor, þetta tók alla helgina bara...
mætti svo í skólann klukkan hálfníu á mánudag DRULLUÞREYTT!! svo
fór ég í söngtíma eftir skóla og söngkennarinn bara Steinunn farðu
bara heim og hvíldu þig þú getur ekki sungið !! ég bara jájá nett
fegin og fór í náttfötin klukkan þrjú og var í þeim ákvað bara að
næla mér í einn sunnudag þar sem ég hafði ekki fengið neitt
helgarfrí! Úúú það var ljúft 
Á morgun er svo fimmtudagur, elska fimmtudaga þar sem ég þarf
ekki að mæta í skólann fyrr en klukkan hálf tvö og fer í tvo tíma..
það er bara næstum komin helgi núna, á eftir að mæta í einn tíma í
dag og svo tvo á morgun og svo er skammhlaup á föstudaginn..
Um helgina er ég svo að vinna..
Næstu helgi er miðannarfríið, frí á föstudag og mánudag og ætlum
við Júlla að halda á Hvammstangann góða.. hef voða lítið litið þar
við síðan í fór í haust nema tvö skipti þar sem ég gisti bara eina
nótt og hitti stelpurnar ekkert í þau skipti! Verð að fara
heim!
En vó shit þetta er orðið langt!
Lilja vinkona á afmæli á laugardaginn hún er að verða
tvítug!!
Svo á að skíra litla strákinn hennar Lísu á föstudaginn.. víst
voða leyndó hvað hann á að heita.. Ég er forvitin! Það verður gaman
að komast að því!
Segjum þetta gott í bili.. það má kenna mér að setja inn myndir
á síðuna ég kann það ekki!